|
10.08.2008 09:42:46 / orgel
Þetta bloggvesen byrjaði hjá mér stuttu eftir að ég flutti til Kaupmannahafnar að áeggjan vinkonu minnar. Mamma var alltaf voðalega áhyggjufull ef hún heyrði ekki frá mér í nokkra daga og mér fannst þetta tilvalin leið til að láta hana og aðra áhugasama vita af því að ég væri á lífi. Einnnig sá ég fram á að eyða minni tíma í meiri samskipti við vini mína með þessum hætti heldur en með gamaldags síma og tölvupóstsamskiptum, auk þess sem ég hef fengið útrás fyrir tuð og nöldur sem annars hefði safnast upp í sneisafullum líkama mínum. En auðvitað er blogg ekki samskipti. Gamlir vinir og kunningjar hafa sagt að þeim finnist þeir vera í reglulegu sambandi við mig af því að þeir lesa alltaf bloggið mitt en ég hef hinsvegar ekkert heyrt frá þeim í nokkur ár. Þegar ánægjan og vinnugleðin er ekki lengur til staðar og mamma löngu búin að venjast því að ég bý í stórborg þar sem leigubílstjórar eru saxaðir niður í ruslagáma er alveg örugglega kominn tími til að enda þessa vitleysu. Það geri ég nú. Þeim sem sett hafa inn athugasemdir þakka ég.
Kveðja, Sigrún
»
03.08.2008 13:41:26 / orgel
Ég ,,hélt upp á" afmælið mitt í gær í sveitinni hjá mömmu og pabba. Helstu gestir voru strengjasveit dauðans sem hélt neðri hluta líkama míns í gíslingu (greinilega orðin of gömul til að trítla á fjöll), frú Dalalæða (mér sýndist þetta vera hún, en kannski er ég bara farin að sjá svona illa) og sólin sem rétt leit inn seinnipartinn en gaf mér ekkert, ef ég man rétt. En til allrar hamingju er fólk alveg hætt að spyrja mig hvað ég ætli að verða þegar ég verð stór eða annarra heimskulegra spurninga sem vænta þroska og ábyrgðar af minni hálfu. Enda hef ég núna svarað öllum slíkum spurningum út í hött síðastliðin tuttugu ár. Þetta hefði getað farið verr.
»
19.07.2008 10:43:29 / orgel
Rammíslensk tónlist með langspili og öllum græjum í Akureyrarkirkju kl. fimm á morgun (sunnudag 20. júlí). Kostar ekki neitt. Einstakt tækifæri (nema auðvitað fyrir þá sem eru alltaf að hlusta og/eða spila á langspil) sem ekki einu sinni verstu dauðyfli ættu að láta fram hjá sér fara.
»
14.07.2008 16:56:44 / orgel
Bína farin, heimagangurinn dauður, vesen í vinnunni, illt í maganum, klúður í jarðarför, ömurlegt veður, kreditkortareikningurinn í hæstu hæðum, gleymdi að ljósrita fyrir tengdó, komst ekki í bankann, öll nærfötin mín eru skítug...
»
12.07.2008 13:01:05 / orgel
Ef það væri nú jafn auðvelt að gera öllum til hæfis og henni Bínu minni þá væri gott að lifa. Betra að lifa, meina ég. Sundlaug Akureyrar, Laufás, Höfðahverfi, íslenskt súkkulaði, lambasteikin og marensinn hennar mömmu og heimagangarnir hans pabba hittu öll beint í mark og frú Bína tilkynnti mér í gær að ég yrði tvöfaldur nemandi hjá henni næsta vetur, altso bæði í sóló og kirkjuspili. Jú húúúúú! Ég er búin að vera gjörsamlega óþreytandi við að auglýsa tónleikana hennar í Akureyrarkirkju á sunnudaginn klukkan fimm að staðartíma. Ókeypis aðgangur, flott efnisskrá, góður orgelleikari, stórkostlegt orgel, umboðsmaður dauðans... Ég bara get ekki hætt.
»
09.07.2008 17:33:33 / orgel
Þá er minn elskaði kennari, hún Bína fína komin til Akureyrar ásamt fjölskyldunni. Hún var búin að hlakka mikið til, enda var ég búin að lýsa Norðurlandi sem einu stórkostlegasta náttúruundri í okkar sólkerfi. Ég sótti hávöxnu fjölskylduna á Akureyrarflugvöll á nýju druslunni minni og þau voru öll í skýjunum yfir fluginu. Sólin skein alla leið og fyrir Dani eru fjöll og jöklar mikilfengleg sjón. Það var bara í Eyjafirðinum sem þokan lá yfir og það gerir hún enn, tveimur dögum síðar. Ég hef reynt að útskýra fyrir Bínu að bak við þokuna sé Vaðlaheiðin sem speglast í firðinum á kyrrum morgnum og út með firðinum megi líta Kaldbakinn þar sem hann gnæfir yfir smáhólana í kring. Því miður er ég ekki viss um að hún trúi einu orði af því sem ég segi lengur og flúði yfir í Vaglaskóg í dag. Verð að reyna að mýkja hana með íslensku fjallalambi, Holtsels ís, lummum og flatbrauði áður en hún þurrkar mig út af nemendaskránni.
»
05.07.2008 11:15:26 / orgel
Næsta sunnudag, þann
6. júlí kl. 17:00 verða tónleikar í
Akureyrarkirkju. Stúlknakórinn Graduale Nobili mun syngja undir stjórn Jóns
Stefánssonar og með þeim leikur sellóleikarinn Ásdís Arnardóttir. Graduale nobili var stofnaður árið 2000 en kórinn er skipaður 24 stúlkum
á aldrinum 17 - 24 ára sem vaxið hafa upp úr Gradualekór
Langholtskirkju. />
Stelpurnar hafa hreppt
önnur verðlaun í Evrópukeppni æskukóra í Kalundborg í Danmörku og árið 2003
hlaut kórinn tvenn gullverðlaun í alþjóðlegu kórakeppninni í Tampere í
Finnlandi. Kórinn var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2008 sem
„Bjartasta vonin“. />
Á efnisskrá tónleikanna
á sunnudaginn eru Maríuljóð, tvö verk sem samin voru sérstaklega fyriri kórinn;
In Paradisum, eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson og kafli úr Vesper, eftir Tryggva
Baldvinsson, Vocalisa eftir Hildigunni Rúnarsdóttur og fleira. />
Tónleikarnir standa í
klukkustund án hlés, aðgangur er ókeypis og hér með er skorað á alla að mæta og
hlusta, þið hafið örugglega gaman að. />
»
02.07.2008 10:24:46 / orgel
hann stóri bróðir minn og það er stórafmæli. Mér finnst nú samt ekki svo langt síðan ég fékk lánað bláa reiðhjólið hans sem var allt of stórt fyrir mig eða veitti honum félagsskap í bílskúrnum við að skipta um kerti í snjósleðanum, tefldi síðustu skákina við hann inni í herbergi eða þegar hann spurði mig síðast hvort ég væri hálfviti.
En allt gerðist þetta í fyrndinni og við erum bæði orðin fullorðin núna, þannig séð.
Hamingjuóskir bestar minn kæri!
»
30.06.2008 09:37:24 / orgel
Er strax komin með langan lagalista fyrir þessa nýju athöfn. http://visir.is/article/20080630/FRETTIR02/272308818Time to say goodbye!
»
29.06.2008 12:38:06 / orgel
Þreif ég íbúð, þvoði þvott, spilaði í konunglegu brúðkaupi, flaug norður og keypti mér bíl.
Í dag er ég þreytt.
»
26.06.2008 10:34:04 / orgel
ég hef aldrei orðið fyrir gamma geislun og breytist í grænt og ofbeldisfullt tröll í hvert skipti sem púlsinn fer yfir 200. Þá væri ennþá hættulegra að búa í Eyjafirði en Skagafirði.
»
20.06.2008 19:58:54 / orgel
Góðan daginn. Sigrún örMagna hér. Ég á dálítið erfitt með aðlögunina að íslensku samfélagi og ferðaðist því með strætó í gær. Ég byrjaði á því að prenta út leiðakerfi strætó á Akureyri. Það var heil A4 síða. Strætó á Akureyri ekur ekki á tuttugu mínútna fresti, eða klukkutíma fresti. Hann byrjar að keyra klukkan 06:16 og svo rúntar hann hringinn sinn, u.þ.b. tvo á klukkutíma, fer eftir því hvort hann þarf að stoppa á leiðinni eða ekki, og hættir um kvöldið þegar bílstjórinn er orðinn þreyttur. En strætó er lítill og krúttlegur, snyrtilegur og mjög fljótlegur á Akureyri. Svo er hann líka heimilislegur því að farþegar þakka fyrir sig þegar þeir yfirgefa vagninn. Enda ástæða til því þjónustan er ókeypis. Ég myndi gjarnan vilja nota þjónustu strætó áfram en neyðist til að nota jeppann á morgun. Aðlögunarinnar vegna.
»
17.06.2008 18:35:41 / orgel
Þar sem ég lá andvaka í miðnætursólinni á holóttum gestasófanum fattaði ég allt í einu að prófin eru búin og einhverntímann í framtíðinni mun einhver á skrifstofu skólans senda BA prófskírteinið mitt á eitthvað heimilisfang (örugglega ekki mitt, það væri ekki líkt starfsmönnum skrifstofunnar) og ennþá lengra fram í framtíðinni mun ég koma höndum yfir skírteinið og sjá svart á ljósjörpu að ég hef lokið BA prófi í kirkjutónlist. Ekkert spennufall fylgdi uppgötvuninni en á endanum sofnaði ég og dreymdi undarlega að venju. Ekki samt drauminn um að starfsfólk Akureyrarkirkju fór í safnaðarferð til Afríku á einkabílum, hann dreymdi mig vikuna áður. En það er gott að vera komin til Íslands í miðnætursólina og njóta sumarsins í mjúkum og hlýjum flíspeysunum. Framundan er þó erfitt aðlögunarferli að íslensku samfélagi. Verð vonandi komin á jeppa í næstu viku, farin að barma mér yfir bensínverðinu og bmi stuðullinn kominn langt yfir 30.
»
04.06.2008 20:14:43 / orgel
Íslandsför nálgast og aðgerðin ,,klára úr ísskápnum" er hafin. Í kvöldmatinn var spínatkássa með lauk og bulgur og ef fer sem horfir þá mun ég nærast eingöngu á bjór, baileys, tómatsósu og grænmeti síðustu dagana. Snorri stakk líka upp á að ég myndi éta blómin sem hann keypti handa okkur á brúðkaupsafmælinu og ég verð að viðurkenna að þau virðast frekar matarmikil að sjá. Þykkir, djúsí stilkar og stór, frískleg blöð. Það gæti líka nýst sem góður undirbúningur fyrir Kreppuna á Íslandi en ég var búin að ákveða að nærast eingöngu á rabarbara og íslensku vatni fram að kartöfluupptekt. Annars finnst mér asnalegt að ísbjarnarkjötinu eigi að farga. Það hefði auðvitað verið tilvalið að gefa fátækum kjötið og losna þannig við bæði kjötið og fátæklingana. Eða fóðra ísbjörninn á láglaunafólki til að hækka meðallaun. Eitthvað verður allavega að gera svo að lífsgæði minnki ekki á Íslandi. Hugsa sér ef kaupmáttur myndi minnka svo stórkostlega að Íslendingar gætu ekki lengur haldið velli sem feitasta norðurlandaþjóðin. Fyrir utan það að herða sultarólina gæti fólk þurft að sameinast í jeppa á leið til vinnu, eða það sem verra er...ganga. (Ég mun útskýra hugtakið síðar).
»
03.06.2008 18:22:01 / orgel
Var búin að skrifa langa færslu en hún var svo ótrúlega leiðinleg að ég þurrkaði hana út. Þið ættuð að vera þakklát yfir því að þurfa ekki að lesa þá hörmung.
»
Síður: 1 2 3 ... 23
|